Frægasta halastjarnan er halastjarna Halleys, nefnd eftir enska stjörnufræðingnum Edmond Halley. Edmond Halley fæddist 8. nóvember árið 1656 og dó 14. janúar 1742. Hann var ekki sá fyrsti sem sá halastjörnu en hann gat reiknað út hvenær næsta halastjarnan mundi sjást. Hann uppgötvaði að halastjörnurnar sem sáust árin 1531, 1607 og 1682 væru allt sama halastjarnan. Halastjarnan gat sést á 76 ára fresti. Hann reiknaði út að næsta halastjarnan mundi sjást árið 1758. Hann dó 85 ára gamall en á jólanótt árið 1758 sá þýskur bóndi og stjörnuáhugamaður Johann Palitzsch halastjörnu og sýndi fram á að Halley hafði rétt fyrir sig.