Mars er fjórða reikistjarnan frá sólu og næst smæsta. Á Mars eru mörg eldfjöll þar að meðal Ólympusfjall sem er stærsta eldfjall í sólkerfinu. Það er um 25 km hátt. Á Mars eru líka mörg gljúfur og stærstu heita Marinergljúfrin. Mars hefur tvö fylgitungl og heita þau Fóbos og Deimos. Árið 1976 lenti fyrsta geimfarið á Mars. Það var ekki auðvelt því yfirborð Mars er allt í gígum og er grýtt. Geimfarið hét Víkingur 1. Ekkert fljótandi vatn hefur fundist á Mars. Hins vegar er frosið vatn í jökli kringum póla reikistjörnunar..