Smástirnabeltið er ekki beint reikistjarna en það er staðsett milli Mars og Júpiters og tilheyrir innri reikistjörnunum. Smástirnin eru gerð úr grjóti og málmum. Flest þeirra eru smá og óregluleg í laginu. Nokkur eru þó risastór. Stærsta smástirnið, Seres, er næstum því 1000 km í þvermáli en það er tæplega þriðjungur af þvermáli tunglsins okkar. Fólk heldur núna að smástirnbeltið sé gert úr efniskekkjum sem urðu ekki að reikistjörnu þegar sólkerfið var að verða til.