Uppruni halastjarna er um 10 billjón km frá sólinni. Þar er staður sem kallast Oort-skýið, nefnt eftir hollenska stjörnufræðingnum Jan Oort. Þetta ský er gert úr ís, gasi og ryki. Stundum dregur þyngdarkraftur stjörnu í grenndinni að sér „skítugan snjóbolta“. Hann getur orðið á stærð við fjall en ekki margir taka eftir þeim. Það kallast halastjarna. Hún fer oft nálægt sólinni og bráðnar þar. Gasið gufar upp og svo hverfur rykið líka. Það myndar ský sem fer utan um kjarna halastjörnunnar og er þá kallaður hjúpur hennar. Saman myndar kjarninn og hjúpurinn höfuð halastjörnunnar. Halastjarnan heldur áfram að fara nær og nær sólinni og þá hitnar höfuðið meira og meira og þynnist út. Hún stækkar og getur orðið milljón km á stærð.